Þjófnaður.

Enn og aftur sér maður það í hverskonar bulli við lífum í.

í Þjóðskjalasafninu þarf að borga 50 krónur fyrir hvert ljósrit, sem er kannski allt í lagi ef þig vantar 1-2 ljósrit, en þegar nemar koma til að afla sér heimilda þá geta þeir td. ekki notað ljósritunarkort HÍ eða keypt kort nei þeir skulu sko borga 50 krónur fyrir hvert eintak og veit ég að í því tilfelli sem ég veit um þá hleypur þetta á fleiri þúsundum þar sem viðkomandi er að afla sér heimilda í BS ritgerð. Það skal enginn segja mér það að það kosti þennan pening að, er nokkuð sama um launakostnað og annað bull, er nefnilega búin að líf í þeirri blekkingu að blessuð ríkisstjórnin okkar ætlaði að gera eitthvað fyrir nema annað en að svipta þá tækifærinu til að lifa. 

Nú er allavegana tækifærið að gera góða hluti er ekki ASG búið að redda okkur út úr kreppunni svo nú ættu bían og bóndinn að fara að gera eitthvað fyrir framtíð þessa lands. 

 


Sælt veri fólkið

Það mætti halda að ég hefði ekkert legur til málana að leggja en svo er nú ekki hef bara verið nokkuð upptekin síðustu máni við að gera ekki neitt sérstakt.Wink

 En svona er nú lífið, við hérna í Fífurimanum fórum nokkuð nett út úr jólaskreytingum þetta árið, ekki svo slæmar en mættu vera ögn nettari.

Svo er náttúrulega uppgötvun ársins og hún er skipalakk þvílík snilld er eiginlega að hugsa um að kaupa mér skip til að mála áður en að ég hreinlega verð búin að skella henni á allt hér, baðinnréttingin er stórkostleg eftir að hún kynntist skipalakkinu og ég hrikalega stolt af því hvað ég er mikill snillingur.

 Þannig að svona er nú lífið í dag, gleðilega jóla rest og gangið hægt um gleðinnar dyr um áramótin.


Góðan dag

Góðan dag kæru vinir, var hreinlega búin að gleyma þessar síðu.Undafarnar vikur hafa verið hreint stórkostlegar, fyrst má þar telja að skammdegið er loksins komið og þá getur maður farið að sofa eins og manneskja, er nefnilega ekki mjög hrifin að þessum björtu nóttum okkar. Svo rættist stóri draumurinn komin með vinnuherbergi en þá er vandamálið að það þarf að mála það og því er ég nú ekki að nenna, en hlýt að detta í málningarhaminn á næstu dögum.

Og ekki versnaði lífið í nú í þessum mánuði en þá skelltum við okkur til Glasgow og ekki voru vonbyggðin að þvælast fyrir okkur þar, þvílík verslunargleði sem við duttum í og ekki var leiðinlegt að detta inn í  Primak. í þeirri sveit hafa menn ekki heyrt um dýrtíð, flottar voru á verði sem er síðan á miðöldum. 

Svo eins og þið sjáið kæru vinir þá er lífið gersamlega dásamlegt.

 

 

 

 

 

 


Rimapæling

Ótrúlegt ég er búin að vera í sumarfríi í heilan mánuð og allan tíman er búið að vera grenjandi blíða og ekki sér fyrir endan á henni.

Er búin að eiga allveg undarlega gott frí, bara gert það sem mig langar þegar mig langar. En ein af stærstu uppgvötunum sumarsins eru trúlega sundlaugarnar, hefði aldrei trúað því hvað þær eru dásamlegar eða eiginlega heitupottarnir og gufan, er enn þeirra skoðunar að synda er ekkert sem maður gerir fyrir heilsuna nema þá til að gera Tryggingarstofnun þann greiða að drukkna og það ætla ég sko ekki að gera.

Fór til Óskars í síðustu viku og fékk fulla skoðun, hvílíkur snillingur þar á ferð, það væri nú ekki leiðinlegt ef Loparíkið gæti launað þessum mönnum með þeim launum sem þeir eiga skilið. En  hef nú ekki stóra trú á að það gerist á þessari öld.

Svo nú á síðustu viku frísins þá er stefnan tekin á það að gera allt það sem ég hef ætlað að gera í sumar td. er ég byrjuð að taka til á háaloftinu er ekki allveg að skilja hvað hefur skeð þar, er nokkuð viss um að trúlega býr einhver þar, ekki trúi ég því á mig að ég gangi svona stórkostlega umHalo.

Reyndar ætluðum við KÁF félagar að fara einhverja góða dagsferð og viðra gönguskóna en vegna anna hjá okkur öllum þá hefur ekki fundist tími, en á neyðarfundi sem var haldin í gær þá var ákveðið að fara frekar í 3 daga göngu um Glasgow í haust þar sem við erum með það á hreinu að það sé það eina sem getur bjargað okkar andlegu heilsu og eins er frekar langt síðan að VISAKORTIN hafa verið viðruð alminnilega og ekki skemmir gengið fyrir okkur þar.

Við eru nefnilega með það á grand tæru að þótt að pundið sé þungt núna þá sé mun ódýrara að versla þar en hér. meina það hver kaupir nærbuxur í Hagkaup á 2000 krónu ? ekki ég borga frekar glommu að peningum til að komast í aðrar búðir.

Svo nú er bara að vona að allt verði ekki vitlaust á peningamörkuðum og Lopabúar verði settir í ferðabann.

Víkjum svo að því hvað ég er orðin ótrúlega myndarleg, lopapeysurnar hreinlega fljúga af prjónunum held að hálf ætttin sé komin í peysur "MADE BY ME" svo er fyrirmyndarfrúin að fara að sauma Rennibraut það verður ekki leiðinlegt þegar að maður missir glóruna þar, hef ekki talið út síðan að ég var handavinnu forðum daga hjá Nönnu sællar minningar. HEf ákveðið að eini tilgangur þeirra hamfara sé að missa vitið.

Ekki má gleyma því að ég fór á Þingvöll til að fullvissa mig á því að fúahjallurinn væri farinn og hvílík sjón hélt ekki að þetta væri svona dásamleg sjón. Annars komst ég af því að fara þennan hring virðist vera einhverskonar þjóðlegar pyntingar sem landinn tekur þátt í glaður og sæll.

En eitt skil ég ekki, afhverju sýnir sjónvarpið ekki frá HM  Íslenska hestsins sem er haldið í Sviss, þeir sýna frá hverju mótin á eftir öðru þar sem ekkert skeður nema í mestalagi að við séum í síðasta sæti en þarna fer fram einhver flottasta íþrótt Íslands og hvílíkir hestar. VÁ Heart

En nú er komið nóg.

KissingKissingKissingKissingKissingKissing

Sexkantur. 

 

 

En 

 

 

 

 


Skítseyði og fljúgandi svín.

Hef undafarna daga spáð í því hvort ég sé klárlega orðin brjáluð.

Málið er að fyrir síðustu kosningar þá var spurningin sú hvort ætti ég að kjósa X-B eða X-VG, báðir á móti ESB eða hvað sem Evrópuskíturinn er kallaður, ekki átti að skríða fyrir Bretum og vinum þeirra. 

Og þar sem ég er einstaklega óheppinn að eðlisfari  þá náttúrulega kaus ég Vitlausa Græna, hvað kom fyrir hausinn á Grímsa. Ætla allavegana ALDREI að kjósa VG aftur er eiginlega að vona að Guðfríður Lilja, Atli og Ögmundur yfirgefi þennan skrípaflokk og geri eitthvað af viti, hef nefnilega ótrúlega mikið álít á þeim.

En það þýðir sko ekki að gráta Björn bónda enda er hann löngu dauður svo nú er bara að taka út sína refsingu og borga allt sem við getum og helst aðeins meira. Finnist mér svo dásamlegt að ríkið kaup Hótel Örk og breyti því í luxus fangelsi fyrir okkar dásamlegu víkinga því ekki gengur nú að setja þá í slaveríið á Hrauninu ef að við viljum á annað borð nokkuð trufla greyin þeir eru nú búnir að taka út sína refsingu ENGAR þotur, óðar skilanefndir búnar að taka penthousin og kolgeggjaður saksóknari sem leggur greyin í einelti.

Skítt með það hvorsum allt komið í klessu.

 

En nú af gleðinni miklu það er komið sumar og sól í heiði skín, svo nú er komið að því að ég er komin í sumarfrí og stjórnlaus gleði framundan.

Stefni að því að gera nákvamlega ekki neitt nema sem mig langar virkilega mikið til.

 

  • Svo bless í bil.  

 


Lögreglan og hraðbankinn

Fyrir þá sem ekki vita þá er besta löggan í bænum staðsett í Grafarvogi og hefur verið geymd niðrí kjallara á Miðgarði en nú eru sko komin jól hjá löggunni og hraðbankanum hér í sveit.

Sko í upphafi var byggður minnsti Landsbanki ever hér í sveit og var það grín að það væri auðveldara að stela öllum bankanum en að ræna hann, en samt sem áður var hann nú rændur einu sinni en það var bara svona til að gleðja íbúana hér í sveit.

Svo kom að því að Landsbankinn varð ótrúlega ríkur og byggði risa ljótan banka í Grafarholti og engum þótti lengur vænt um minnsta banka landsins, sem kúldraðist aleinn með hraðbankann sinn við Strandveginn.

En nú er sko búið að breyta bankanum í löggustöð og hvílík snilld nú þar fólk ekki lengur að leita af löggustöðinni heldur hreinlega sér hana þegar það smellur í sveitina og ekki verra að nú er sko ekki hægt að ræna hraðbankanum nema að ræna löggunni í leiðinni.

Ef þetta kallast ekki að laga sig að breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu þá veit ég ekki hvað. 

 

 


Fjúgandi svín.

Enn á ný þarf ég að kyngja því að annað hvort er ég eða sumir fávitar.

 Þar sem það er ýmislegt að angra mig þá höfum við þetta einfalt.

1. Er fólk virkilega svona hrætt við sjúkdóma að það er farið að hamstra andlitsgrímur? Já sumir eru víst að missa vitið yfir svínaveikinni omg er ekki í lagi með fólk, skil reyndar þá sem eru að ferðast á þessum svæðum eða í flugvélum en sorrý Bíðið eftir að fljúgandi svínið komi.

2.Hvað var það í úrslitum kosninganna sem Kolbrún skildi ekki? Er virkilega  hægt að vera svo tæpur í ventlastæðunni að skilja ekki þegar manni er hafnað.

Kolbrún fólki finnst þú frekar leiðigjarn röflari.

3.Nú á að fara að kenna kreppu greyinu um það að Íslensk börn eru óuppalin og kolbrjáluð úr frekju.

4.Ef þú ert dagforeldri þá er stjórnlaust eftirlit með húsnæði þeirra en þú mátt vera með sumarbúðir sem eru að hrynja sérstaklega ef það tengist einhverju trúarrugli.

5.Er búin að fá hundleið á því að viss stétt innan trúarbullsins sé gersamlega að leggja visst fólk og stefnur í einelti. Spörum þjóðinni pening á þessum erfiðu tímum og aðskiljum ríki og kirkju.

6.Látum kjósa um ESB svo fólk geti hætt að velta sér upp úr þessu. Ég segi NEI nema ég græði þvílíkt á inngöngu.

7. Hættum að hugsa um atvinnulausa eins og þau séu með bannvænan sjúkdóm, verkalýðsfélöginn ættu að skammast sín og gera eitthvað fyrir elli-örorkulífeyrisþega þeir þurfa frekar ódýra líkamsrækt en atvinnulausir.

8.Að banna staði eins og Goldfinger er til skammar ef fólk vill fara á svona staði þá á það að geta það, verður það eitthvað betra þegar það er búið að setja staði sem þessa í undirheimalífið.

Ragnheiður Ásta komdu til jarðar smá stund á viðkomu í Svíþjóð.

9.Slökum aðeins á í útlendingabullinu, þætti gaman að sjá það að ég fengi að flytja inn mann frá Írak, ef konur að erlendum ættum er velkomið hér afhverju eru karlmann það ekki. 

Upps mundi allt í einu að menn eru hryðjuverkamenn, dópsalar og kvennaníðingar en konur ónei en hverjir ólu þessa ódæðismenn upp ? Já einmitt konur en trúlega eru það allt kvennalistabeljur.

10. Afhverju í helvíti eru íþróttir ekki sýndar á einhverri annarri rás, það ætti ekki að vera mikið mál.

 En hvað veit ég.

Þangað til næst bless

 

 

 

 


Le Sing og Holly

Góðan dag gott fólk langt síðan við sáumst síðast.

það kom aðþví að maður datt í það og þvílk Jörfagleði sem varð nú. Við vinkonurnar voru mætta kl. 13.00 í make up hjá Rúnu kraftaverkakonu og það var bara gaman, siðar var haldið heim Kóda dressið tekið úr skápnum og rúllað til Nonna í Effect í hárgreiðslu.

OG nú vorum við orðnar gersamlega stórkostlegar konur, var nú skundað í Ásbyrgi á Abba show og mat og hvílíkt brjálæði þessir krakkar sem eru með showið eru snillingar og ekki var nú maturinn og vínið slæmt, endaði hreinlega með því að við hreinlega misstum okkur, og ekki var verra að detta inn á Holly ballið í endanum, er nokkuð viss um að öll þjóðin var þar.

 Það voru því glatt lið sem hélt heim á leið er leið á nóttina.

Takk krúttulingar fyrir dásamleg kvöld og verið góðar við mennina ykkar, þeir eiga það skilið eftir að hafa fylkt okkur eftir í geggjuninni.

OG vill bara láta ykkur sem ekki líkar við Geira á Goldfinger hann er meiri maður en mörg ykkar, honum fannst það lítið mál að kaupa Blá borðan og styrkti þar með Blátt áfram, maður þarf nefnilega að vita hvað er kynferðislegt ofbeldi og hvað eru kerlingarbækur.

bless í bili. 

 


Forræðishyggja

Hélt að minn tími væri komin, ekki haft neitt í langan tíma til að pirra mig á. En ekki var Adam lengi í Paradís "Höfum við án gríns ekki alvöru vandamál" Nei félagsmálakvennalistakerlingin vá langt orð þarf að nota síðustu andartökin í stjórnmálalífi sínu til forræðishyggju, ekki skrítið að þessar sárþjáðu kvennalistakerlingar séu á leið út úr stjórnmálum, guð sé lof fyrir að við þurfum vonandi ekki að horfa oftar á þær á þingi.

Held að þær ættu að fara í smá naflaskoðun og sjá að fólk er búið að fá meira en nóg af þeim.

  

 


Dýrahjálp Íslands


Velkomin á heimasíðu
Dýrahjálpar Íslands!

Beiðni um aðstoð - 5. mars 2009

Kæri Dýravinur,
Átt þú dót í geymslunni eða bílskúrnum sem þú notar ekki lengur? Áttu föt sem þú notar ekki lengur? Þá getur þú hjálpað dýrum í neyð.

Nú þarf Dýrahjálp Íslands á ykkar hjálp að halda. Nú þegar fer að vora nálgast álagstími fyrir okkur þar sem það hefur sýnt sig að á þessum tímum þarf að finna heimili fyrir mörg dýr. Til að standa þetta aukna álag leitum við til ykkar.

Dýrahjálp þarf að standa straum af dýralæknakostnaði og fæði þeirra dýra sem við tökum í fóstur en hefur hvorki fastar tekjur né styrki og öll starfsemi okkar er unnin í sjálfboðastarfi.
Við erum þó ekki einungis að leita eftir fjármagnsstyrkjum því hugmyndin er einnig að vera með sölu á alls kyns varningi í Kolaportinu til þess að standa undir læknis- og fóðurkostnaði sem og öðru sem fellur til.

Endilega kíktu í geymsluna, bílskúrinn og skápana og athugaðu hvort þú átt eitthvað sem þú vilt gefa Dýrahjálp. Við erum mjög þakklát fyrir allt sem okkur berst.


Bestu kveðjur,
f.h.Dýrahjálpar Íslands
www.dyrahjalp.org

Ef þið getið hjálpað, hafið samband við:

Alma Sif S: 865-2891 eða Helena S: 867-8054
eða
atburdahopur@dyrahjalp.org

Es.
Sá þessa augl. á síðu Dýrahjálparinnar og ákvað að skella henni hér.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband